Allir að skoða http://web.mac.com/svalakon
Er að prufa nýja síðu.. en er ekki hætt með þessa
allir kíkja!!
» 1 hafa sagt sína skoðun
aðeins tveir dagar þangað til að ég byrja mitt nám í HÍ þetta er að verða ansi spennandi !! ég er að vinna frá 20-8 í dag og á morgunn og svo mæti ég kl.13 upp í skóla í kynningu.. það veður mjög gaman að sjá hvernig þetta allt saman virkar
annars er lítið að frétta.. var líka að vinna í nótt, sem betur fer var ekki mikið að gera en það eru alltaf einhver slagsmál því miður!!
Fight club... Brad Pitt er flottur en það er því miður ekkert sexý að sjá karlmenn að slást!!
en nóg að muldri.. ég læt svo vita hvernig ég er að fíla skólann.. ég veit að það verður jákvæð færsla
hafið það gott í kvöld og vonandi sjáumst við ekki!!
» 2 hafa sagt sína skoðun
jæja, þá er þessari letihelgi lokið !! vá, ég man ekki eftir annarri eins leti yndislegt!!! ég og magni lágum inn í stofu alla helgina liggur við og skiptumst á að horfa á sjónvarpið og sofa!! ég fór svo í bíó á die hard 4 á laugardeginum með antoni á meðan magni fór í e-ð fótboltapartý! hún var bara mjög fín...
Það styttist óðfluga í upphaf skólagöngu minnar í HÍ ... ætla að reyna að fara í vikunni og kaupa skólabækur! ég á von á því að það eigi eftir að kosta morðfjár!!
ég er búin að fá vinnu með skólanum, ég verð s.s. að vinna þriðju hverja helgi.. ég held að það sé bara rosa fínt.. þá er ekki of mikil pressa en ég fæ samt e-ð útborgað !!
en ég er að verða búin að vinna.. er ekki ennþá búin að komast í það að setja inn myndir!! vonandi fljótlega.... en hafið það gott!
» 0 hafa sagt sína skoðun
jæja, þá er næturvaktin mín að klárast!! búin að vera fín nótt.. horfði á Aladín áðan ég var búin að gleyma því hvað hún er skemmtileg!!
en Magni minn var að keppa áðan með Reynir Sandgerði á móti stjörnunni og þeir unnu 3-1 !! ótrúlega ánægð með það!! Nú er það bara baráttan !!! http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=50988
en ég hef fátt að segja, ætla að fara að gera upp og fara svo heim að lúllast
Var að skoða eina flotta husky mynd, ætla að deila henni með ykkur !
Góða nótt!! eða kannski dag
Þá er maður kominn heim.. veit varla hvort ég eigi að hlægja eða gráta Það var svo ótrúlega nice að vera þarna og gera bara það sem maður vildi, liggja í leti, fara í sólbað og sofa eins og maður nennti En þetta var alveg æðislegt!!! ég saknaði samt Magna míns eins og brjálaðingur!!!!! en ég lifði og það var aðallega vegna þess að krakkarnir sem og var með voru æðisleg!!!! i love you guys!!! ég ætla ekki að skrifa mikið en svona það helsta sem við gerðum var að við fórum tvisvar til Barcelona, tvisvar í Port aventura, tvisvar til Terragona að versla og þar á milli lágum við í leti, fórum á ströndina, borðuðum góðan mat og drukkum áfengi
ég ætla að reyna að setja inn myndir fljótlega.. er í vinnunni núna og svo byrjar skólinn bara eftir tvær vikur!!! ég er bæði spennt og kvíðin! en ég veit að þetta á eftir að verða skemmtilegt ævintýri!!
en jæja... vildi bara láta aðeins heyra í mig!
bæjós
kl. er 05:45 á miðvikudagsnótt og ég er að vinna! ég er frekar þreytt en mér finnst samt fínt að vera á næturvakt.. ég er líka að vinna næturvakt á morgunn og síðan á föstudaginn þá fer ég í klippingu og svo kl. 18:00 er brúðkaupið hennar Kollu frænku! ohh.. ég hlakka rosa mikið til að fara.. það er svo rosalega langt síðan ég fór í brúðkaup! Svo er svo týbíst að magni sé að fara að keppa á sama tíma! óþolandi þessir fótboltastrákar hehe.. en vonandi vinna þeir þá bara leikinn.. þá verð ég rosa kát!
svo er ég bara í fríi restina af helginni, spá hvort maður gerir e-ð skemmtilegt með honum magna mínum eða kíki í bústaðinn til Söru&Gunna!!
Eftir helgi þá fer ég að vinna næturvakt á mán og þriðjud. Svo á þriðjudeginum fer ég í litun og plokkun og svo ætlar hún Ingunn pæja að koma til mín á fimmtudeginum og hún ætlar að setja á mig neglur! ég ætla sko að verða megapæja í útlandinu hehe..
En það var rosalega gaman hjá mér í gær, ég fór í sumarbústað og hitti þar Áslaugu frænku mína ásamt Bjarnþóri frænda, Thelmu, Agnetu og Brynjari Loga. Það var svoo heitt í gær, við lágum í sólbaði og fórum í heita pottinn! þetta var æðislegt... svo fórum við í ís-bíltúr og enduðum í leti um kvöldið og við spiluðum líka smá!! ég hefði alveg verið til í að vera hjá þeim lengur en vinnan kallaði!
en ég ætla að fara að gera e-ð skemmtilegt svo er ég búin eftir einn og hálfan tíma og þá fer ég heim og beint að lúlla
Kv. Svala
ég hef nú ekki mikið að segja eins og er... langaði bara að skila smá kveðju það styttist óðum í að ég og hópurinn fari til Salou!! aðeins 18 dagar....! mér finnst eins og það hafi verið í gær þegar það voru 150 dagar þangað til !! tíminn liður hratt þegar maður er ánægður og líður vel Magni fór í afmæli í Vestmanneyjum á laugard. ég var að passa Dimitar á meðann hann er algjör rúsína! sætastur!
ég fór í útskrift til hennar Röggu á laugard. hún er orðinn stúdent og var að útskrifast úr menntaskólanum við hraðbraut.. mjög stolt af henni eftir það fór ég með Önnu, kærasta vinar hans magna, í bíó.. við sáum shrek the third! hún er æði.. ég elska shrek!!!!!!!
ég elska líka sérstaklega köttinn!! hehe snilldar svipur!
ég mæli allavega með þessari mynd
en ég ætla að halda áfram að vinna... ég er að vinna núna í dag, á morgunn, miðvikud, föstud, laugard og sunnud. !! nóg að gera
en ég kveð að sinni Svala
http://www.b2.is/?sida=tengill&id=243707
''None, they all fly away with the first gunshot.''
The teacher replies, ''The correct answer is 4, but I like your thinking.'' Then Little Johnny says, ''I have a question for YOU. There are three women sitting on a bench having ice cream. One is delicately licking the sides of the triple scoop of ice cream. The second is gobbling down the top and sucking the cone. The third is biting off the top of the ice cream. Which one is married?''
The teacher, blushing a great deal, replies, ''Well I suppose the one that's gobbled down the top and sucked the cone.''
''The correct answer is the one with the wedding ring on...but I like your thinking.''
ég held að það kíki enginn á þessa síðu! en kannski á ég einhverja leynda aðdáenda sem bara nenna ekki að kommenta
en ég er búin að vera í fríi síðan á mánudag.. ég skipti nefnilega um vakt og þess vegna er ég að vinna morgunvakt í dag, svo næturvakt í kvöld og svo kvöldvakt á morgunn... ég verð örugglega skemmtilega þreytt á sunnudeginum
en það er alveg týbíst að maður þurfi að vinna svona mikið þegar manni er boðið í þrjár afmælisveislur!!!! Tóta hélt upp á afmælið sitt í gær, Ingunn ætlar að halda upp á sitt í dag og svo ætlar hún Ása mín að vera með pulsuveislu fyrir hana Sísí litlu á sunnudaginn, því hún varð 4 ára á miðvikudaginn!! algjör skvísa ég fór einmitt með þeim þá í húsdýragarðinn.. mjög gaman hjá okkur stelpunum!
en vikan var fljót að líða.. á mánudaginn fór ég til Magna og kúrði þar yfir daginn með Dimitar því Magni var í Vestmanneyjum að keppa í bikarnum við ÍBV.. Reynir tapaði þeim leik og duttu þ.a.l. úr bikarnum. En Magni minn stóð sig eins og hetja Á þriðjud. var ég í sólbaði og hitti svo Söru, Ásu og börnin í sundi og við enduðum daginn á að grilla okkur gómsætt kjöt Á miðvikud. fór ég með Ásu og Sísí í húsdýragarðinn og leti með múttu um kvöldið Á fimmtud. var ég í sólbaði mest allan daginn og varð smá sólbrennd eftir daginn maður þarf að vera duglegur í sólinni áður en maður fer til Spánar. Um kvöldið fór ég, Sara, Gunni, Lovísa og vinur hennar á Caruso og fengum okkur afmælismat því hún Lovísa átti afmæli þá Til hamingju með afmælið Lovísa og Ingunn!! við borðuðum góðan mat og kíktum svo á Hressó ! Á föstud. var ég bara heima í algjörri leti naut þess í botn! svo er ég bara að vinna alla helgina!
en ég ætla að láta þetta gott heita og halda áfram að vinna!
Hafið það rosalega gott um helgina.. Kv.Svala
klukkan er hálf 9 á sunnudagsmorgni og ég er búin að vera vakandi í einn og hálfan tíma! ég er á morgunn vakt um helgina og ég er alveg rooooosalega þreytt en ég er svo í fríi fram að næsta föstudag, ég skipti nefnilega um vakt við eina
en helgin er búin að vera kósý, ég fór til magna á föstudeginum og við gláptum á dvd og svo kom hann til mín í gær og við horfðum á meira dvd ég var alveg að fíla þessa leti!
en hún tóta ætlaði að halda upp á afmælið sitt í gær en hún varð víst veik og því ekkert afmæli! vonandi verður það bara fljótlega í staðinn
en annars hef ég ekkert rosa mikið að segja! ég er bara að verða spennt fyrir því að fá útborgað! það verður gaman að sjá hversu mikið maður getur eytt í útlandinu!!
en ég ætla að halda áfram að vinna!
Ákvað að láta þessa mynd fylgja! flott mynd!!
Sjáumst Kv.Svala
Ég fór aftur í Ásu gellu í gær það var rosalega gaman.. við lékum við stelpurnar, leigðum spólu og elduðum góðan mat! Takk Ása.. við ætlum að reyna að gera þetta í hverri viku í sumar ef okkur gefst tími!!!
en annars er ég bara búin að vera að vinna kvöldvaktir í vikunni.. þá hefur maður nú ekki mikinn tíma til að vera með vinum sínum því maður er alltaf í fríi þegar aðrir eru að vinna en ég er að vinna alla helgina frá 7:30-15:30.. það er fínt en það þýðir að maður geti ekki vakið lengi um helgina og það er soldið súrt! en ég lifi
Tóta ætlar víst að halda smá afmæli á laugardaginn og ég ætla mér að reyna að kíkja þangað annars er helgin ekkert plönuð
en hafið það gott um helgina og gangið hægt um gleðinnar dyr
Kv.Svala
Ég og magni skelltum okkur á Hellishóla um helgina! það var æðislegt... við fórum á laugardeginum og gistum eina nótt.. magni var að keppa á föstudagskvöldið og því fórum við á laugardeginum.. þeir voru að keppa við Leiknir og því miður unnu þeir ekki þann leik
en laugardagurinn var alveg æðislegur!! við lögðum af stað og fórum fyrst heim til mín, fengum bílinn hennar múttu og þá var haldið af stað á Hellishóla! Auðvitað kom hann Dimitar okkar með við keyptum okkur e-ð gott í bónus og fengum okkur sjeik og svona skemmtilegt þegar við komum loksins á Hellishóla þá fengum við lykilinn að litla húsinu okkar og skelltum okkur þangað! það var lítið og krúttlegt.. mjög þægilegt að vera svona í náttúrunni með ekkert sjónvarp og ekkert útvarp! bara ég, magni, dimitar og náttúran við tókum bara með okkur góðar bækur og fórum í göngutúra og spjölluðum saman! við fengum líka gott að borða hjá Lælu og Víðir
en Magni minn, takk æðislega fyrir helgina! þetta var ljúft
Kv. Svala sæla
hahaha fann þetta á einhverri síðu... frekar vitlaus kona!
vildi bara deila þessu með ykkur!